 Lið KA/Þór fær heldur betur verðugt verkefni á laugardaginn
| | 6. nóvember 2009 - Akureyri handboltafélag skrifarStórleikur á laugardaginn: KA/Þór – StjarnanÞað er ekki laust við að verði risaleikur á laugardaginn klukkan 16:00 þegar KA/Þór taka á móti Íslands- og bikarmeisturum Stjörnunnar. Það er góðkunningi okkar, Atli Hilmarsson sem þjálfar liðið. Stjarnan er í toppbaráttunni sem stendur með fjóra sigra úr fimm leikjum, þær töpuðu fyrsta leiknum gegn Val sem eru fyrir vikið í toppsætinu.
Stelpurnar í KA/Þór sýndu það í síðasta leik gegn Haukum að liðið er vaxandi og ætla sér klárlega að sýna hvað í þeim býr og berjast til síðasta manns á laugardaginn. Leikurinn hefst klukkan 16:00 í KA heimilinu og það er ókeypis á völlinn.
Sjá nánari upplýsingar um leikinn.
 |