Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Óskum Jonna til hamingju með viðurkenninguna

16. desember 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar

Jónatan Magnússon í liði N1-deildarinnar

HSÍ tilkynnti nú í hádeginu val á úrvalsliði fyrsta þriðjungs N1-deildarinnar. Leikmenn Akureyrar Handboltafélags eiga þar einn fulltrúa en Jónatan Magnússon var valinn besti miðjumaðurinn. Sömuleiðis fékk Akureyri Handboltafélag viðurkenningu fyrir að vera með bestu umgjörð á heimaleikjum sínum.

Það var Ólafur Guðmundsson úr FH sem var valinn besti leikmaður deildarinnar en í heildina lítur úrvalslið N1-deildar karla þannig út:

Besti markvörður: Hlynur Morthens, Val
Línumaður: Atli Ævar Ingólfsson, HK
Vinstra horn: Freyr Brynjarsson, Haukum
Hægra horn: Arnór Þór Gunnarsson, Val
Vinstri skytta: Sigurbergur Sveinsson, Haukum
Hægri skytta: Ólafur Guðmundsson, FH
Miðjumaður: Jónatan Þór Magnússon, Akureyri
Besti leikmaður: Ólafur Guðmundsson, FH

Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka var valinn besti þjálfarinn og þeir félagar Gísli H. Jóhannsson og Hafsteinn Ingibergsson bestu dómararnir.

Og eins og áður segir, Akureyri handboltafélag fyrir bestu umgjörð leikja.

Við óskum Jónatan og öllum ofangreindum til hamingju með góðan árangur það sem af er.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson