Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Stúkan full og rúmlega það

17. desember 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar

Frábærir áhorfendur - myndir af þeim frá Haukaleiknum

Áhorfendur troðfylltu stúkuna í Íþróttahöllinni í síðustu viku og þurfti að bæta við stólum á gólfinu til að koma fólki fyrir. Þrátt fyrir að liðið næði ekki að sýna hvað í því býr þá sýndu áhorfendur frábæra takta og gerðu sitt til að hvetja liðið áfram. Enda ekki að undra þar sem í hlut eiga bestu stuðningsmenn á landinu og þeir eiga svo sannarlega sinn þátt í að skapa umgjörðina um leikina sem var einmitt viðurkennd í dag að væri sú besta á landinu.

Hér er hægt að skoða fjöldan allan af myndum sem Þórir Tryggvason tók af áhorfendum í Haukaleiknum síðasta fimmtudag.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson