 Sigur er alltaf sigur
| | 19. desember 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar2. flokkur kominn í 8-liða úrslit bikarkeppninnarStrákarnir í 2. flokki tryggðu sér í gær sæti í 8-liða úrslitum bikarkeppninnar með því að sigra Gróttu á heimavelli þeirra 28-30 eftir að hafa verið yfir í hálfleik 13-15. Við höfum reyndar engar frekari upplýsingar um gang leiksins, sigur er jú alltaf sigur en fyrirfram hefði maður vonast eftir stærri sigri.
Nú er ljóst að Haukar, Víkingur, ÍR, Selfoss og Akureyri hafa tryggt sér sæti í 8-liða úrslitum en FH og HK eru einnig komin áfram en þau lið sátu hjá. Þá hafa ekki borist úrslit úr leik ÍBV og Stjörnunnar en annað hvort þeirra heldur áfram. |