Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Óskum strákunum til hamingju







28. desember 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar

Akureyringar í yngri landsliðum Íslands

HSÍ hefur valið stráka til landsliðsæfinga nú í kringum áramótin. U-20 ára hópurinn æfir dagana 29. og 30. desember í Kaplakrika og hefur Oddur Gretarsson verið valinn í hópinn.

Þá hefur verið valinn æfingahópur U-18 ára landsliðsins en þeir æfa helgina 2. -3. janúar í Kórnum í Kópavogi. Þeir félagar Guðmundur Hólmar Helgason og Geir Guðmundsson, leikmenn Akureyrar eru í hópnum auk markvarðarins Gunnars Bjarka Ólafssonar úr KA.

Við óskum þeim öllum til hamingju með góðan árangur og óskum þeim alls hins besta í þessum verkefnum sem og öðrum.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson