 Hafţór og Oddur voru frábćrir í leiknum í dag

| | 28. desember 2009 - Akureyri handboltafélag skrifarDeildarbikarinn rann úr greipum AkureyrarAkureyri var grátlega nálćgt ţví ađ landa fyrsta meistaraflokkstitlinum í sögu félagsins í dag. Akureyringar mćttu vel stemmdir til leiks og komust í 5-0 í upphafi leiks. Hafţór gjörsamlega lokađi markinu á upphafsmínútunum en Haukarnir náđu reyndar iđulega fráköstum og fengu annađ tćkifćri.
Ţađ var ekki fyrr en eftir tíu mínútur sem Haukar komust á blađ en ţá svöruđu ţeir međ nćstu fjórum mörkum og spenna komin í leikinn. Akureyringar héldu ţó nokkuđ öruggri forystu upp á 2 til 3 mörk út hálfleikinn en hálfleiksstađan var 13-11 Akureyri í vil.
Hafţór átti magnađan fyrri hálfleik í markinu og varđi ein tólf skot og var tvímćlalaust mađur vallarins í fyrri hálfleik. Oddur hélt uppteknum hćtti og skorađi mörk í öllum regnbogans litum, alls sjö í fyrri hálfleik.
Haukarnir náđu ađ jafna í 15-15 ţegar tíu mínútur voru liđnar af seinni hálfleik en Akureyri gaf í og náđi tveggja marka forystu 17-15 og seinna 19-17. Ţá kom hins vegar slakur kafli ţar sem Haukarnir gerđu fjögur mörk í röđ á međan allt gekk á afturfótunum hjá okkar mönnum, dauđafćri og vítakast fóru forgörđum og Haukar komust yfir í fyrsta sinn í leiknum 19-21.
Guđmundur Hólmar kom ţá inná á ný og jafnađi međ tveim bylmingsskotum 21-21. Haukarnir voru skrefinu á undan lokakaflann en Árni Sigtryggsson jafnađi í 24-24 ţegar nítján sekúndur voru til leiksloka.
Ţessar lokasekúndur voru dramatískar, vörn Akureyrar virtist ćtla ađ halda en Haukar komu skoti á markiđ sem Hafţór varđi í innkast. Á einhvern ótrúlegan hátt náđu Haukarnir ađ taka innkastiđ og Tjörvi Ţorgeirsson átti síđan skot sem hafnađi í markinu um leiđ og leiktíminn rann út og sigur Hauka stađreynd 24-25.
Ţessi úrslit voru sárgrćtileg ţví Akureyri hafđi leikinn í höndum sér mestallan tímann og fengu leikmenn býsna mörg tćkifćri til ađ gera út um leikinn. Oddur Gretarsson átti annan stórleikinn í röđ og var yfirburđamađur í sóknarleik liđsins. Varnarleikurinn gekk býsna vel í dag líkt og í gćr en ţađ verđur ađ segjast ađ sóknarlega kom afskaplega lítiđ út úr hćgri vćngnum og er ţađ eitthvađ sem klárlega ţarf ađ vinna í á nćstu vikum.
Mörk Akureyrar skoruđu: Oddur Gretarsson 11 (3 víti), Árni Sigtryggsson 3, Andri Snćr Stefánsson 2, Guđmundur Hólmar Helgason 2, Hreinn Hauksson 2, Hörđur Fannar Sigţórsson 2 og Jónatan Magnússon 2.
Hafţór Einarsson stóđ í markinu allan tímann og stóđ svo sannarlega fyrir sínu međ 22 skot varin. |