Heimasíđan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Nćstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Ţú flettir milli frétta međ örvalyklunum eđa smellir á bláu örvarnar! 

Jóhann Gunnarsson fór mikinn á lokamínútunum

17. janúar 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar

2. flokkur kominn í undanúrslit bikarsins – sigur á HK

Strákarnir voru vel stemmdir fyrir leikinn enda hafa ţeir tvisvar ţurft ađ lúta í gras í bikarúrslitum gegn HK.
Leikurinn fór vel af stađ, mikill hrađi var á báđa bóga en heimamenn höfđu undirtökin framan af. Vörn og markvarsla var í háum gćđaflokki fyrstu fimmtán mínútur leiksins og stađan fljótlega orđin 6-3 fyrir heimamenn. Oddur Gretarsson fór á kostum í fyrri hálfleik og skorađi átta mörk í öllum regnbogans litum.
Síđustu 10 mínútur hálfleiksins misstu strákarnir einbeitinguna, HK liđiđ gekk á lagiđ og náđi ađ jafna í 13-13 ţegar hálf mínúta var til hálfleiks. Lokamark hálfleiksins var síđan glćsilegt sirkusmark frá fyrirliđanum Bjarna Jónassyni eftir sendingu frá Jóni Heiđari og tryggđi Akureyri forystu í hálfleik 14-13.

Heimamenn leiddu svo međ 2-3 mörkum fram í miđjan seinni hálfleik en í stöđunni 19-16 kom aftur slćmur kafli sem HK menn nýttu sér og komust yfir í fyrsta skipti í stöđunni 20-21 ţegar um 10 mínútur lifđu leiks. HK náđi mest tveggja marka forystu 21-23 en ţá var Akureyrarstrákunum nóg bođiđ, jöfnuđu leikinn og litu ekki um öxl eftir ţađ. Munađi ţar mest um frábćra innkomu Jóhanns Gunnarssonar í sóknina en hvađ eftir annađ braust hann í gegnum vörn gestanna af miklu harđfylgi og lagđi grunn ađ ţví sem lokamínúturnar báru í skauti sér ţegar strákarnir sigldu fram úr HK og tryggđu sér sćti í undanúrslitum bikarkeppninnar. Lokastađan 32-27.

Liđiđ spilađi í heildina vel og menn komu sterkir inn af bekknum, ţá sérstaklega Jóhann međ fjögur mikilvćg mörk og ţá kom Páll í markiđ síđustu 14 mínúturnar og var međ 50% markvörslu. Ţá sýndi Oddur ţađ enn einu sinni ađ ţar er á ferđinni einn besti handboltamađur landsins. Hann skorađi ellefu mörk ţrátt fyrir ađ vera tekinn úr umferđ megniđ af leiknum.

Mörk (skot):
Oddur Gretarsson 11 (13)
Bjarni fyrirliđi Jónasson 6 (10)
Halldór Logi Árnason 4 (5)
Jóhann Gunnarsson 4 (5)
Jón Heiđar Sigurđsson 4 (6)
Jón Ţór Sigurđsson 3 (7)

Varin skot (mörk á sig):
Siguróli Magni Sigurđsson 8 (22)
Páll Snćvar Jónsson 4 (4).
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síđu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson