 Sterkt æfingamót í Hafnarfirði um helgina
| | 18. janúar 2010 - Akureyri handboltafélag skrifarLið Akureyrar tekur þátt í æfingamóti um næstu helgiÞó að sé formlegt frí í íslenska handboltanum þessa dagana þá þýðir það ekki að strákarnir okkar séu aðgerðalausir. Þeir hafa æft stíft allan tímann og nú er að hefjast æfingaleikjahrina.
Um næstu helgi tekur lið Akureyrar þátt í sterku móti í Hafnarfirði sem handknattleiksdeild Hauka stendur fyrir. Mótið er kallað Eiðsmót Hauka 2010 og taka fjögur úrvalsdeildarlið þátt í mótinu, Haukar, FH, Akureyri og Grótta. Fyrirkomulag mótsins er þannig að allir leika við alla og er leikjaskipulagið sem hér segir:
Laugardagur 23. janúar Kl. 10:00 Haukar – Fram Kl. 11:30 Grótta – Akureyri Kl. 16:30 Akureyri – Fram Kl. 18:00 Haukar – Grótta
Sunnudagur 24. janúar Kl. 14:30 Fram – Grótta Kl. 16:00 Haukar – Akureyri
Allir leikirnir verða í Íþróttahúsinu við Standgötu líkt og deildarbikarinn sem var á milli jóla og nýárs. Við munum fjalla nánar um mótið eftir því sem nær dregur.
 |