 Hvernig færum við að án þjónustu SportTV.is?
| | 4. febrúar 2010 - Akureyri handboltafélag skrifarLeikur í dag: FH – Akureyri sýndur í KA heimilinu og í HamriLoksins, loksins byrjar karlahandboltinn að fljúga hér innanlands í dag þegar þrír leikir fara fram í N1 deild karla. Við höfum að sjálfsögðu mestan áhuga á leik FH og Akureyrar sem hefst klukkan 18:30 í Kaplakrika (Hafnarfirði). Aðrir leikir kvöldsins eru: Grótta – Valur og Haukar – Fram.
SportTV.is ætlar að sýna leik okkar manna beint á netinu og hvetjum við alla stuðningsmenn til að fylgjast með enda forvitnilegt að sjá hvernig liðin koma til leiks eftir óralangt hlé. Vegna anna á Greifanum verður leikurinn ekki sýndur þar að þessu sinni en verður þess í stað sýndur á stóru tjaldi bæði í KA Heimilinu og Hamri, félagsheimili Þórs. Í KA heimilinu verður hægt að kaupa pizzu og gosglas á 300 krónur.
Í leiðinni er rétt að minna á að það er stutt í næsta leik þar á eftir en á mánudagskvöldið kemur harðsnúið lið Gróttumanna norður og þá verður fjör í Íþróttahöllinni.
En verkefni dagsins er sem sé leikurinn gegn FH og beinum við stuðningsmönnum Akureyrar á höfuðborgarsvæðinu á að fjölmenna í Kaplakrikann og styðja sína menn.
Smelltu hér til að fylgjast með útsendingu SportTV.is á netinu. |