Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Það eru ekkert nema úrslitaleikir eftir hjá Bjarna og félögum

1. apríl 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar

2. flokkur: Leikur gegn Fram í úrslitakeppninni í dag

Athugið að þetta er ekki aprílgabb! Úrslitakeppni 2. flokks hefst í dag með leik Akureyrar og Fram. Leikið er í Íþróttahúsi Síðuskóla og hefst leikurinn klukkan 14:00.

Í úrslitakeppninni leika sex efstu liðin úr 1. deild og efstu tvö úr 2. deild. Aðrir leikir í 8 liða úrslitunum eru: Haukar – Stjarnan, Selfoss – ÍR og loks Víkingur – FH og fara þeir einnig fram í dag.

Það er því mikið undir í þessum leik, ekkert nema sigur kemur til greina til að komast í 4 liða úrslitin sem verða í Hafnarfirði laugardaginn 10. apríl.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson