 Árni skoraði tíu mörk í kvöld
| | 8. apríl 2010 - Akureyri handboltafélag skrifarSigur á Haukum og 3. sæti N1 deildarinnar er tryggtAkureyri gerði það í kvöld sem trúlega fáir reiknuðu með og sýndi loks sitt rétta andlit að nýju með því að leggja deildarmeistara Hauka á þeirra eigin heimavelli og tryggðu sér sæti í 4 liða úrslitum Íslandsmótsins.
Eftir jafnar upphafsmínútur virtist sem Haukar ætluðu að stinga af í leiknum, breyttu stöðunni úr 3-3 í 8-3 og 9-4. Næstu tvö mörk komu frá Akureyri en þá komu aftur fimm Haukamörk í röð og staðan orðin afleit 14-6 og ekki bætti úr skák að á sama tíma var FH komið með vænlega stöðu gegn HK og Akureyri þar með úr leik í slagnum um sæti í úrslitakeppninni.
Þessi átta marka munur hélst upp í stöðuna 16-8 en Akureyri skoraði tvö mörk á síðustu 20 sekúndum fyrri hálfleiks og því „aðeins“ sex marka munur í hálfleik 16-10.
Eins og þessi lýsing ber með sér var útlitið dökkt, FH tveim mörkum yfir gegn HK þannig að ljóst var að seinni hálfleikur yrði barátta upp á líf og dauða.
Og þvílíkur viðsnúningur, menn mættu tvíefldir til leiks og Jónatan Magnússon fór hamförum, skoraði hvert markið á fætur öðru og eftir átta mínútna leik jafnaði hann leikinn í 20-20. Árni Sigtryggsson komst sömuleiðis í ham og dældi inn mörkum í framhaldinu þannig að á næstu tíu mínútum var Akueryri komið með þriggja marka forystu, 25-28 og þar með gátu menn hætt að spá í stöðuna hjá FH og HK.
Haukarnir náðu að minnka muninn í eitt mark í stöðunni 28-27 en þar með var Akureyringum nóg boðið og þeir kláruðu lokakaflann af öryggi og fóru með fjögurra marka sigur, 30-34.
Þjálfarinn, Rúnar Sigtryggsson tók drjúgan þátt í varnarleiknum og skundaði í sóknina einnig og skoraði tvö mikilvæg mörk, trúlega mark leiksins þegar hann klíndi boltanum í samskeytin um leið og fyrri hálfleikur rann út.
Markaskorunin var annars sem hér segir: Árni Sigtryggsson 10, Jónatan Magnússon 7 (1 víti), Oddur Gretarsson 6 (1 víti), Hörður Fannar Sigtryggsson 3, Geir Guðmundsson, Heimir Árnason og Rúnar Sigtryggsson 2 mörk hver og Halldór Logi Árnason 1 mark.
Hafþór Einarsson stóð í markinu allan tímann, og varði 11 skot.
Þar sem FH sigraði HK er ljóst að Akureyri og HK eru jöfn að stigum en þar sem Akureyri hefur betur í innbyrðisviðureignum liðanna er ljóst að Akureyri endar í 3. Sæti en HK í því fjórða. Sætum sigri fagnað í kvöld. Hreinn með glæsilega brynju! Mynd: Hilmar Þór - Sport.is Á sport.is er hægt að skoða fleiri myndir Hilmars Þórs frá leiknum og lesa umfjöllun Snorra Sturlusonar.
Andstæðingar Akureyrar í 4 liða úrslitunum verða því Valsmenn og kemst það lið sem fyrr vinnur tvo leiki í úrslitarimmuna gegn sigurvegaranum í viðureignum Hauka og HK.
Fram bjargaði sér frá falli, Grótta fer í umspil við liðin í 2.-4. sæti fyrstu deildarinnar um sæti í deildinni næsta ár en Stjarnan fellur.
Það eru hinsvegar Selfyssingar sem koma upp í úrvalsdeildina næsta ár. |