Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Sendum Halldóri og félögum baráttukveðjur

10. apríl 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar

2. flokkur: Úrslit Íslandsmótsins ráðast um helgina

Fjögur lið berjast um Íslandsmeistaratitilinn í 2. flokki karla, Akureyri,ÍR , Haukar og FH. Fjögurra liða úrslitin fara fram í dag í Hafnarfirði en leikið er Íþróttahúsinu við Strandgötu. Klukkan 12:00 leika Haukar og FH en klukkan 14:00 mætast Akureyri og ÍR.

Á sunnudaginn verða síðan á sama stað úrslitaleikirnir þar sem sigurvegararnir úr leikjunum í dag leika til úrslita en hin liðin um 3. sætið.

Akureyri sigraði Fram í 8 liða úrslitunum en ÍR kom á óvart og sló út sterkt lið Selfyssinga á þeirra eigin heimavelli í framlengdum leik. Enginn skyldi því vanmeta ÍR-inga í dag þeir geta svo sannarlega bitið frá sér.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson