Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Við sendum þeim frændum baráttukveðjur í landsleikina



15. apríl 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar

Fleiri Akureyringar í U-20 landsliðinu

Við greindum frá því um daginn að Oddur Gretarsson hefði verið valinn í U-20 ára landslið Íslands. Nú hafa tveir leikmenn Akureyrar til viðbótar verið valdir í hópinn en það eru þeir frændur Guðmundur Hólmar Helgason og Geir Guðmundsson.

Við óskum þeim félögum til hamingju en þeir hafa leikið frábærlega í vetur með liðum sínum, báðir leika þeir í 3. flokki og eru burðarásar sinna liða. Eins og allir vita hafa þeir leikið mikið með meistaraflokki Akureyrar og nú undir lok tímabilsins hafa þeir einnig komið við sögu hjá 2. flokki sem á einungis eftir úrslitaleikinn um Íslandsmeistaratitilinn.

Þremenningarnir eru þessa dagana við æfingar með U-20 ára landsliðinu en um helgina leikur liðið í undankeppni Evrópumeistaramótsins en leikið verður í Laugardalshöllinni.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson