 Heimir, Jonni og Hafþór voru léttir því með gömlu félögunum


| | 15. apríl 2010 - Akureyri handboltafélag skrifarSögufræg lið áttust við í KA heimilinu á SkírdagÁ Skírdag fór fram skemmtilegur handboltaleikur í KA heimilinu. Þar mættust hóparnir tveir sem fyrst lönduðu Íslandsmeistaratitli hjá KA í handbolta árið 1992 og 1993. Þetta voru s.s. árgangar drengja fæddir 1977-1980. Leikurinn var æsispennandi en lauk með sigri eldra liðsins.
Í liðunum voru nokkrir leikmenn sem enn eru að spila handknattleik s.s. Akureyrarleikmennirnir Hafþór Einarsson, Heimir Árnason og Jónatan Magnússon að ógleymdum Halldóri Jóhanni Sigfússyni frá Raufarhöfn sem nú spilar með Fram. Aðrir leikmenn hafa lagt mishart að sér við æfingar eftir að ferlinum lauk og aukakílóin orðin sumum til vandræða.
 Hafþór lokar á Þóri Sigmundsson
Þórir Tryggvason var að sjálfsögðu mættur á svæðið og á heimasíðu KA má sjá fjölmargar myndir frá þessum athyglisverða leik.
Smelltu hér til að skoða myndirnar. |