 Nú hefst í raun nýtt mót þar sem allt er mögulegt
| | 15. apríl 2010 - Akureyri handboltafélag skrifarÚrslitakeppni karla hefst fimmtudaginn 22. aprílFramundan er lokarimma Íslandsmótsins í handknattleik karla þar sem Akueyri, Haukar, HK og Valur berjast um Íslandsmeistaratitilinn. Í fjögurra liða úrslitunum mætast annars vegar Haukar og HK og hins vegar Akureyri og Valur. Þau lið sem sigra í þessum viðureignum heyja síðan lokaslaginn um Íslandsmeistaratitlinn.
Fyrsti leikur Akureyrar og Vals verður fimmtudaginn 22. apríl en þá mætast liðin í Vodafonehöllinni en liðin mætast svo aftur hér í Íþróttahöllinni laugardaginn 24. apríl og hefst sá leikur klukkan 18:30. Það lið sem fyrr vinnur tvo leiki fer í úrslitarimmuna en ef liðin vinna sitt hvort leikinn verður þriðji leikurinn í Vodafone höllinni mánudaginn 26. apríl.
Það eru orðin átta ár síðan að lið frá Akureyri og Valur mættust í úrslitakeppni Íslandsmótsins. En árið 2002 mættust KA og Valur í lokaslagnum og er sá slagur ógleymanlegur þeim sem fylgdust með. Valsliðið hafnaði það árið í 2. sæti deildarinnar en KA endaði í 5. sæti. Í 8 liða úrslitum mættust Valur og Þór þar sem Valur vann einvígið 2-0. KA mætti Gróttu KR og vann sömuleiðis 2-0.
 Heimir Örn Árnason í baráttu gegn Alexander Peterson leikmann Gróttu KR 2002
Í 4 liða úrslitunum átti KA í höggi við deildar- og bikarmeistara Hauka og unnu það einvígi 2-0 með gríðarlegri baráttu. Á sama tíma áttust við Valur og Afturelding og vann Valur nokkuð sannfærandi 2-0.
Á næstu dögum munum við rifja upp úrslitarimmuna frá 2002 en hún varð einhver sú æsilegsta í sögu Íslandsmótsins og að sjálfsögðu er bara um tvennt að ræða: Annaðhvort að vinna og komast á spjöld sögunnar eða tapa og gleymast - það er ekki spurning hvort hlutskiptið er skemmtilegra!.
Hópferð á leikinn gegn Val! En aftur til nútímans – við ætlum svo sannarlega að hafa gaman að úrslitakeppninni í ár, fyrsti leikurinn er útileikur gegn Val á fimmtudaginn (sumardaginn fyrsta), áreiðanlegar heimildir herma að hann verði sýndur beint í sjónvarpinu. Komið hefur til tals að kanna hvort áhugi sé á að bjóða upp á rútuferð á leikinn þannig að dyggir stuðningsmenn Akureyrar geti mætt á staðinn með strákunum og yfirtekið Vodafonehöllina. Ætlunin er að gera könnun um málið hér á heimasíðunni, fylgist með málinu hér. |