Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Strákarnir í 2. flokki geta lokið tímabilinu með titli

2. maí 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar

Tímabilinu er ekki lokið: Úrslitaleikur 2. flokks eftir

Þó svo að meistaraflokkur Akureyrar hafi lokið keppni á tímabilinu þá er ekki þar með sagt að vertíðinni sé lokið. Strákarnir í 2. flokki eiga ennþá eftir að leika úrslitaleikinn um Íslandsmeistaratitilinn en ennþá er allt á huldu um hvenær hann fer fram.

Til að rifja upp málið þá unnu Akureyrarstrákarnir sigur á ÍR í 4. liða úrslitunum á sama tíma og Haukar unnu FH og því áttu Akureyri og Haukar að leika úrslitaleikinn þann 11. apríl síðastliðinn. FH kærði hinsvegar leikinn gegn Haukum og fóru fram á að leikurinn yrði leikinn að nýju. Því varð ekkert af því að úrslitaleikurinn færi fram.

Dómstóll HSÍ hafnaði kröfu FH-inga þann 20. apríl en ekki er enn búið að tímasetja úrslitaleikinn. Hægt er að lesa dómsorð og niðurstöður dómstólsins hér.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson