 Við bjóðum Atla Hilmarsson velkominn til starfa fyrir Akureyri Handboltafélag
| | 6. maí 2010 - Akureyri handboltafélag skrifarAtli Hilmarsson ráðinn þjálfari Akureyrar HandboltafélagsNú um klukkan 18:45 var skrifað undir ráðningarsamning við Atla Hilmarsson um þjálfun liðsins. Samningur Atla er til tveggja ára en með endurskoðunarákvæði eftir eitt ár.
Atli lýsti mikilli ánægju með að vera kominn norður á ný, hér þekkti hann vel til baklandsins og liðið væri mjög áhugavert, blanda ungra stórefnilegra leikmanna svo og reynslubolta. Undirritun samningsins í dag Það var Hannes Karlsson, formaður Akureyrar Handboltafélags sem undirritaði samninginn fyrir hönd félagsins og viðstaddir voru fulltrúar leikmanna þeir Guðmundur Hólmar Helgason og Heimir Örn Árnason.
Við bjóðum Atla velkominn til leiks og væntum mikils af samstarfinu. Aðspurður kvað Atli að raunhæft væri að setja markið hátt fyrir komandi tímabil. Fyrsta markmið liðsins væri að sjálfsögðu að fara í úrslitakeppnina en að sjálfsögðu væru væntingar um að fara alla leið.
Æfingar undir stjórn Atla munu hefjast í júníbyrjun. |