Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Loksins virðist vera að komast botn í málið

12. maí 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar

2. flokkur: Úrslitaleikurinn verður spilaður á föstudaginn

Nú eru línur loks eitthvað að skýrast með úrslitaleik Akureyrar og Hauka í 2. flokki karla. HSÍ hefur ákveðið að leikurinn fari fram á föstudaginn 14. maí klukkan 16:30 og verði leikinn einhversstaðar á höfuðborgarsvæðinu. Nákvæmlega hvar er þó ekki ljóst á þessari stundu.

Við munum að sjálfsögðu greina frá því hér á síðunni um leið og það skýrist. Sigurvegarinn í þessum leik verður krýndur Íslandsmeistari en síðastliðinn laugardag léku FH og ÍR um þriðja sætið og lauk þeim leik með sigri FH 37-30.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson