 Við óskum Oddi og Heimi til hamingju með viðurkenningar sínar!

| | 9. maí 2010 - Akureyri handboltafélag skrifarOddur valinn efnilegasti leikmaður N1 deildar karlaLokahóf HSÍ var haldið í gærkvöldi og voru þar veittar ýmsar viðurkenningar fyrir nýlokið leiktímabil svo og tilkynnt hverjir skipa úrvalslið tímabilsins.
Tveir leikmenn Akureyrar handboltafélags komu hér við sögu en Oddur Gretarsson var valinn efnilegasti leikmaður N1 deildar karla og sömuleiðis valinn í úrvalsliðið sem besti vinstri hornamaðurinn.
Heimir Örn Árnason fékk háttvísisverðlaun karla en það er dómarasambandið sem veitir þau. Við óskum þeim Oddi og Heimi að sjálfsögðu til hamingju með viðurkenningar sínar.
Þjálfarar N1 deildarinnar velja mikilvægasta leikmann deildarinnar og fær hann Valdimarsbikarinn. Verðlaunahafar kvöldsins sem voru viðstaddir. Mynd: Guðlaugur Ottesen sport.is Hér að neðan gefur að líta heildarlista yfir verðlaunahafa kvöldsins:N1 deild karla 2010Háttvísiverðlaun HDSÍ: Heimir Örn Árnason - Akureyri Valdimarsbikarinn: Valdimar Fannar Þórsson - HK Markahæsti leikmaður: Bjarni Fritzson – FH með 149 mörk Besti varnarmaður: Gunnar Berg Viktorsson - Haukar Besti sóknarmaður: Valdimar Fannar Þórsson - HK Besti markmaður: Birkir Ívar Guðmundsson - Haukar Efnilegasti leikmaður: Oddur Gretarsson - Akureyri Handknattleiksmaður ársins 2010: Valdimar Fannar Þórsson - HK Besta dómaraparið 2010: Anton Gylfi Pálsson og Hlynur Leifsson Besti þjálfari: Gunnar Magnússon - HK
Lið ársins: Markvörður: Hlynur Morthens, Val Línumaður: Pétur Pálsson, Haukum Vinstra horn: Oddur Gretarsson, Akureyri Vinstri skytta: Sigurbergur Sveinsson, Haukum Hægra horn: Arnór Þór Gunnarsson, Val Hægri skytta: Bjarni Fritzson, FH Miðjumaður: Valdimar Fannar Þórsson, HK. Úrvalslið N1 deildar karla. Mynd: Guðlaugur Ottesen sport.is
N1 deild kvenna 2010Háttvísiverðlaun HDSÍ: Berglind Íris Hansdóttir - Valur Markahæsti leikmaður: Hanna Guðrún Stefánsdóttir - Haukum með 215 mörk Besti varnarmaður: Anna Úrsúla Guðmundsdóttir - Valur Besti sóknarmaður: Karen Knútsdóttir - Fram Besti markmaður: Berglind Íris Hansdóttir - Valur Besti þjálfari: Einar Jónsson - Fram Efnilegasti leikmaður: Sunna Jónsdóttir - Fylkir Handknattleikskona ársins 2010: Hanna Guðrún Stefánsdóttir – Haukar
Lið ársins: Markvörður: Berglind Íris Hansdóttir - Valur Línumaður: Anna Úrsúla Guðmundsdóttir - Valur Vinstra horn: Rebekka Rut Skúladóttir - Valur Vinstri skytta: Stella Sigurðardóttir - Fram Hægra horn: Guðrún Þóra Hálfdánsdóttir - Fram Hægri skytta: Hanna G. Stefánsdóttir - Haukar Miðjumaður: Karen Knútsdóttir - Fram Úrvalslið N1 deildar kvenna. Mynd: Guðlaugur Ottesen sport.is
1 deild karla 2010Markahæsti leikmaður: Ragnar Jóhannsson – Selfossi með 145 mörk Besti varnarmaður: Arnar Pétursson - ÍBV Besti sóknarmaður: Ragnar Jóhannsson - Selfoss Besti markmaður: Arnór Freyr Stefánsson - ÍR Besti þjálfari: Sebastían Alexandersson - Selfoss Efnilegasti leikmaður: Arnór Freyr Stefánsson - ÍR Leikmaður ársins: Ragnar Jóhannsson - Selfoss
Þá fékk Stjarnan unglingabikar HSÍ. |