 Norđlenska stendur sig
| | 13. ágúst 2010 - Akureyri handboltafélag skrifarOpna Norđlenska mótiđ á Akureyri 10.-11. septNú er lokaundirbúningur liđanna fyrir átök vetrarins hafinn og ađ vanda verđa nokkur ćfingamót haldin ţar sem fćri gefst á ađ slípa saman liđin og einnig ađ koma stuđningsmönnum í rétta gírinn fyrir alvöruna.
Ađ ţessu sinni höldum viđ eitt slíkt mót hér á Akureyri og er ţađ Norđlenska sem er helsti bakhjarl mótsins, enda heitir mótiđ Opna Norđlenska.
Mótiđ fer fram 10. og 11. september og verđur leikiđ í Íţróttahöllinni. Alls eru sex liđ skráđ í mótiđ, Valur, FH, Fram Grótta og Stjarnan auk Akureyrar. Leikiđ verđur í tveim riđlum og síđan um sćti. Norđlenska mun veita verđlaun fyrir sigur í mótinu og einnig verđa veitt verđlaun fyrir besta markmanninn, besta sóknarmanninn og besta varnarmanninn.
Búiđ er ađ rađa liđunum í riđla og verđur leikiđ sem hér segir: Föstudagur 10. september Kl. 16:30 Akureyri - Grótta Kl. 18:00 Valur - Stjarnan Kl. 19:30 Grótta - Fram Kl. 21:00 Stjarnan - FH
Laugardagur 11. september Kl. 09:30 Fram - Akureyri Kl. 11:00 FH - Valur Kl. 12:30 5 - 6 sćti. Kl. 14:00 3 - 4 sćti. Kl. 15:30 1 - 2 sćti.
Eins og áđur segir verđur leikiđ í Íţróttahöllinni og ljóst er ađ ţetta verđur sterkt og skemmtilegt mót, dómgćsla verđur í öruggum höndum Jóns Karls og Ţorleifs.
Alls eru ţetta níu leikir og verđur hćgt ađ kaupa ađgangskort sem gildir á alla leiki mótsins. Nánar um ţađ síđar. |