 Ţetta var ekki dagur íslensku strákanna á EM

| | 13. ágúst 2010 - Akureyri handboltafélag skrifarAnnađ tap hjá U-18 ára liđinu - draumurinn úti - myndirÍslensku strákarnir í U-18 ára landsliđinu töpuđu illa í dag fyrir Sviss 24-33 í öđrum leik sínum í lokakeppni EM sem fram fer í Svartfjallalandi. Stađan í hálfleik var 11-16. Ţar međ er draumurinn um ađ komast í milliriđil úr sögunni.
Sviss byrjađi leikinn mun betur og náđu snemma forystu í leiknum og leiddu međ 5 mörkum í hálfleik eins og fyrr segir 11-16. Leikur íslenska liđsins hrundi svo algjörlega í síđari hálfleik og náđu Svisslendingar mest 12 marka forystu 14-26 og hafđi ţá íslenska liđiđ bara náđ ađ skora 4 mörk á 18 mínútum í síđari hálfleik.
Mörk Íslands í leiknum skoruđu: Leó Snćr Pétursson 7/3, Sveinn Sveinsson 3/1, Geir Guđmundsson 3, Ísak Rafnsson 3, Rúnar Kristmundsson 3, Guđmundur Hólmar Helgason 2, Pétur Júníusson 1, Arnar Birkir Hálfdánarson 1 og Ţráinn Jónsson 1.
Brynjar Darri Baldursson varđi 15 skot og Sigurđur Ingiberg Ólafsson 7 skot.
Síđasti leikur liđsins er á móti Tékklandi og fer hann fram á sunnudaginn kl 14:00 ađ íslenskum tíma.
Slóvenar unnu Tékka í dag 37-35 og eru međ fullt hús, eđa 4 stig en Sviss er međ 3 stig. Tékkar hafa 1 stig en Ísland er án stiga og ţví miđur ljóst ađ liđiđ á ekki möguleika á ađ komast áfram ađ ţessu sinni..
Á heimasíđu mótsins eru međfylgjandi myndir úr leiknum gegn Sviss: Íslensku strákarnir syngja ţjóđsönginn fyrir leik
 Ţađ er greinilegt ađ ţađ er lögđ áhersla á ađ stöđva Gumma
|