Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Reynsluboltinn Hafþór Einarsson

18. ágúst 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar

Hafþór Einarsson til liðs við Aftureldingu

Það hefur legið í loftinu í sumar að markvörðurinn Hafþór Einarsson myndi hugsanlega yfirgefa liðið. Nú hefur það verið staðfest að Hafþór er genginn í raðir nýliða Aftureldingar úr Mosfellsbænum. Hafþór staðfesti það við okkur að hann væri að flytjast á suðvestur-hornið þar sem hann færi í nám og nú væri frágengið að hann myndi klæðast Aftureldingarpeysunni.

Hafþór sem er kornungur af markvörðum að vera, 31 árs átti frábær tímabil eftir að hann tók fram skóna á ný fyrir tveim árum eftir stutta hvíld. Þar á undan lék hann lengst af með KA en varði einnig mark Þórs um tíma.

Hafþór var valinn besti leikmaður Akureyrar tímabilið 2008-2009 og fékk sömuleiðs háttvísisverðlaun HSÍ fyrir sama tímabil.

Við sendum Hafþóri eða Haffa bestu óskir í þetta verkefni um leið og við þökkum honum árin í boltanum hér fyrir norðan.


Haffi ver eitt af þremur vítum sínum í leik gegn Fram árið 2009

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson