 Gummi og Geir láta ekki sitt eftir liggja með landsliðinu

| | 21. ágúst 2010 - Akureyri handboltafélag skrifarU-18 Ísland leikur um 11 sætiðU-18 ára landslið karla tapaði í gær fyrir Póllandi 36-32 í krossspili um sæti 9-12 á lokakeppni EM. Staðan í hálfleik var 16-15 fyrir Íslandi.
Jafnt var á með liðunum megnið af fyrri hálfleiknum en þegar um 10 mínútur voru eftir af hálfleiknum þá kom góður kafli hjá íslenska liðnu og náði liðið að skora síðasta mark hálfleiksins. Í þeim síðari skiptust liðin á að hafa forystu en þegar um 10 mínútur voru eftir að snérust lukkudísirna með pólska liðinu og náðu þeir því að síga fram úr á lokasprettinum.
Íslenska liðið leikur því um 11 sætið en þar mætir liðið Tékkum kl 15:30 að íslenskum tíma.
Mörk Íslands í leiknum skoruðu:
Guðmundur Hólmar Helgason 9, Geir Guðmundsson 7, Sveinn Sveinsson 6, Ísak Rafnsson 4, Arnar Birkir Hálfdánarson 2, Pétur Júníusson 2, Leó Pétursson 1 og Víglundur Þórsson 1.
Brynjar Darri Baldursson stóð vaktina í markinu og varði 17 skot. |