Heimasíđan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Nćstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Ţú flettir milli frétta međ örvalyklunum eđa smellir á bláu örvarnar! 

Akureyrarliđiđ ţarf ađ gera betur á morgun gegn Fram



10. september 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar

Nú er lokiđ fyrri degi Opna Norđlenska mótsins

Akureyri – Grótta
Í fyrsta leik mćttust Akureyri og Grótta ţar sem Akureyri byrjađi vel og komst í 4-2 en ţá sneru Gróttumenn dćminu viđ, skoruđu nćstu fimm mörk og komust í 4-7 áđur en Akureyri komst á blađ á ný. Gróttu hélt forystunni út hálfleikinn og leiddu 12-15 ţegar flautađ var til hlés.

Ţađ var ekki fyrr en í stöđunni 24-24 sem Akureyri tókst ađ jafna leikinn en náđu aldrei frumkvćđinu og Grótta sigrađi ađ lokum međ einu marki 27-28.

Akureyri saknađi sárlega Guđmundar Hólmars Helgasonar sem meiddist á ćfingu í gćr og liđiđ náđi sér aldrei almennilega á flug. Hins vegar léku Gróttu menn afar vel í leiknum og verđa greinilega til alls vísir í 1. deildinni í vetur.

Mörk Akureyrar skoruđu: Bjarni Fritzson 8, Geir Guđmundsson 6, Heimir Örn Árnason og Oddur Gretarsson 4 hvor, Hörđur Fannar 3, Daníel Einarsson og Guđlaugur Arnarsson 1 mark hvor.
Hjá Gróttu var Hjalti Pálmason atkvćđamestur međ 9 mörk.

Valur – Stjarnan
Annar leikur dagsins var á milli Vals og Stjörnunnar, leikurinn var hnífjafn mestallan fyrri hálfleikinn, jafnt á nánast öllum tölum upp í 10-10 en Valsmenn sigu fram úr í lokin og voru 14-11 yfir í hálfleik. Valsarar sigu síđan fram úr eftir ţví sem leiđ á seinni hálfleikinn og fóru ađ lokum međ sex marka sigur 25-19. Áhorfendur í höllinni veittu sérstaka athygli vinstra hornamanni Stjörnunnar sem er enginn annar en Bjarni Jónasson, fyrrum leikmađur Akureyrar.

Anon Rúnarsson var iđinn viđ markaskorun hjá Val, skorađi 7 mörk en hjá Stjörnunni voru Tandri, Vilhjálmur og Guđmundur međ 4 mörk hver. Mađur leiksins var tvímćlalaust markvörđur Stjörnunnar sem átti stórleik.

Grótta – Fram
Ţriđji leikur dagsins var síđan á milli Gróttu og Fram. Gróttuliđiđ sýndi töluverđa mótspyrnu framan af leik en ljóst var ađ menn voru ţreyttir eftir fyrsta leikinn og ţví náđu frískir Framarar fljótlega yfirhöndinni. Hálfleiksstađan 9-14 Fram í vil.

Sá munur jókst síđan jafnt og ţétt og endađi leikurinn međ öruggum sigri Fram 24-35. Hjalti Pálmason var enn sem fyrr markahćstur Gróttumanna međ 6 mörk en hjá Fram var Halldór Sigfússon markahćstur međ 5 mörk en markaskorunin dreifđist mjög hjá liđinu.

Í liđi Fram eru Akureyringarnir Halldór Jóhann Sigfússon og brćđurnir Magnús og Hákon Stefánssynir frá Fagraskógi en nú hefur Heiđar Ţór Ađalsteinsson bćst í hóp Akureyringa í Framliđinu.

Stjarnan – FH
Lokaleikur dagsins var á milli Stjörnunnar og FH. Stjarnan var sem sé ađ leika sinn annan leik eftir stutta hvíld og líkt og hjá Gróttumönnum kom í ljós ađ fyrri leikurinn hafđi tekiđ sinn toll. FH sem spilađi mjög hrađan bolta tók öll völd á vellinum en Stjarnan klórađi í bakkann og munurinn ađeins fjögur mörk í hálfleik, 12-16 fyrir Stjörnuna.

FH ingar hertu tök sín á leiknum í seinni hálfleik og unnu loks tíu marka sigur 24-34.

Hjá FH var Ásbjörn Friđriksson drýgstur međ 6 mörk en Tandri skorađi sömuleiđis 6 mörk fyrir Stjörnuna.

Á laugardagsmorgunn kl. 9:30 mćtast Akureyri og Fram og ţar á eftir klukkan 11:00 Valur og FH. En ţar á eftir verđa ţrír leikir um sćti.

Nánari fréttir og myndir frá mótinu koma á morgun.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síđu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson