 Hannes Karlsson bauð viðstadda velkomna á kynninguna
| | 12. september 2010 - Akureyri handboltafélag skrifarLeikmannakynning Akureyrar var á föstudagskvöldiðÁ föstudagskvöldið var haldin kynning á leikmannahóp Akureyrar. Kynningin fór fram í stuðningsmannaherbergi liðsins í Íþróttahöllinni á meðan Opna Norðlenska mótið stóð yfir. Boðið var upp á léttar veitingar, Hannes Karlsson formaður félagsins bauð gesti velkomna og kynnti til leiks nýtt þjálfarateymi, þá Atla Hilmarsson og Sævar Árnason.
Atli kynnti sérstaklega nýja leikmenn sem hafa gengið í raðir félagsins í sumar og síðan aðra leikmenn félagsins.
John Júlíus Cariglia kynnti stuðningsmannaklúbbinn og lýsti því að sala stuðningsmannaskírteina væri hafin.
Það styttist í að vetrarstarfið fari á fulla ferð, Íslandsmótið hefst þann 30. september með útileik gegn HK en fyrsti heimaleikur okkar er gegn nýliðum Aftureldingar fimmtudaginn 7. október þannig að það er allt að komast á fulla ferð og ástæða til að hlakka til komandi leiktíðar. Atli kynnir nýju leikmennina, Sveinbjörn Pétursson, Bjarna Fritzson og Daníel Einarsson Hér er hægt að skoða fleiri myndir Þóris Tryggvasonar frá kynningunni. |