 Guðmundur Hólmar kom á ný inn í liðið,Oddur og Hlynur komu sterkur inn


| | 17. september 2010 - Akureyri handboltafélag skrifarSannfærandi sigur Akureyrar á FH í kvöldAkureyri sneri heldur betur við blaðinu í kvöld þegar þeir unnu sannfærandi sigur á FH í Hafnarfjarðarmótinu. Eftir jafna byrjun tók Akureyri leikinn gjörsamlega í sínar hendur og náði sex marka forystu 14-8 þó svo að FH hafi komið til baka þannig að forysta Akureyrar var var einungis tvö mörk í hálfleik 16-14.
Liðið endurheimti sex marka forystuna fljótlega, 21-15 og satt að segja áttu FH ingar aldrei raunhæfan möguleika á að snúa leiknum sér í hag þannig að Akureyri landaði þægilegum fjögurra marka sigri 32-18.
Allt annað var að sjá til liðsins í kvöld heldur en í gær, sóknarleikurinn miklu beittari, vörnin býsna traust og Sveinbjörn frábær í markinu.
Enn einn unglingurinn, Hlynur Matthíasson kom sterkur til leiks í hægri skyttunni og einnig tók Guðmundur Hólmar Helgason þátt í sóknarleiknum, en hann hefur verið að glíma við meiðsli og sýndi hve mikilvægur hann er fyrir liðið.
Liðið spilaði í heild glimrandi leik og sýndi að það er til alls líklegt í vetur.
Mörk Akureyrar: Bjarni Fritzson 8, Oddur Gretarsson 7, Hlynur Matthíasson 5, Guðmundur Hólmar Helgason, Heimir Örn Árnason og Hörður Fannar Sigþórsson 3 mörk hver, Geir Guðmundsson 2 og Halldór Logi Árnason 1.
Í markinu varði Sveinbjörn Pétursson 20 skot.
Lokaleikur Akureyrar er gegn Val og hefst hann klukkan 14:00 og er að sjálfsögðu sýndur beint á SportTV.
Þú smellir hér til að komast á vef SportTV.is |