 Daníel Einarsson var frábær í dag bæði í sókn og vörn
| | 18. september 2010 - Akureyri handboltafélag skrifarGóður sigur á Val í Hafnarfjarðarmótinu - Akureyri í 2. sætiAkureyri lék sinn síðasta leik á Hafnarfjarðarmótinu í dag þegar liðið mætti Val. Valsmenn höfðu tapað bæði gegn FH og Haukum en mættu býsna ákveðnir til leiks og leiddu svo til allan fyrri hálfleikinn. Akureyrarliðið virkað frekar kærulaust í fyrri hálfleik en í lok hans voru Valsarar tveim mörkum yfir 12-14.
Sveinbjörn stóð fyrir sínu í fyrri hálfleik með tíu skot varin og Hlynur Matthíasson átti góða innkomu í sóknarleiknum og skoraði þrjú mörk.
Það var síðan allt annað lið sem kom inná í seinni hálfleik, Akureyri skoraði fyrstu fimm mörk hálfleiksins og hreinlega keyrði yfir Val með öflugum varnarleik og sóknarleikurinn var með ágætum. Bjarni Fritzson og Daníel Einarsson voru flottir á hægri vængnum og röðuðu inn mörkum auk þess sem Oddur lét heldur betur að sér kveða.
Forysta Akureyrar varð mest átta mörk í stöðunni 31-23 en liðið slakaði aðeins á undir lokin og lauk leiknum með fimm marka sigri 35-30.
Allir leikmenn í hópnum fengu að spreyta sig og ljóst að margir efnilegir strákar eru tiltækir.
Mörk Akureyrar: Oddur Gretarsson 8, Bjarni Fritzson 7, Daníel Einarsson 6, Hörður Fannar Sigþórsson 4, Guðmundur Hólmar Helgason og Hlynur Matthíasson 3 mörk hvor, Heimir Örn Árnason 2, Bergvin Gíslason og Halldór Logi Árnason 1 mark hvor. Sveinbjörn Pétursson varði 11 skot og Stefán Guðnason sem stóð vaktina seinni part seinni hálfleiks fjögur skot.
Í lokaleik mótsins sigruðu Haukar FH og tryggðu sér þar með sigur í mótinu.
Úrslit leikjanna: FH – Valur 28-18 Haukar – Akureyri 22-18 Haukar – Valur 30-25 FH – Akureyri 28-32 Akureyri – Valur 35-30 FH – Haukar 19-24
Röð liðanna: 1. Haukar 6 stig 2. Akureyri 4 stig 3. FH 2 stig 4. Valur 0 stig
Í lok mótsins voru valdir menn mótsins og átti Akureyri þar tvo fulltrúa: Sveinbjörn Pétursson markvörður mótsins, Bjarni Fritzson hægri hornamaður, Ólafur Guðmundsson FH, skytta, Atli Sigþórsson FH línumaður, Stefán Rafn Sigurmannsson Haukum vinstri hornamaður og maður mótsins. |