Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Oddur er ekki alls ókunnugur íslensku landsliðunum

28. október 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar

Oddur Gretarsson valinn í A-landslið Íslands

Þau tíðindi voru að berast að Oddur Gretarsson, leikmaður Akureyrar hafi verið valinn í landsliðshópinn sem leikur gegn Austurríki á laugardaginn. Íslenska liðið heldur utan á föstudaginn og leikurinn sem er liður í undankeppni EM verður sýndur beint á RÚV og hefst útsendingin klukkan 18:20.

Í gær gerðu Austurríkismenn og Þýskaland jafntefli þannig að Íslenska liðið þarf að leika betur en gegn Lettum í gær.

Við óskum Oddi alls hins besta í baráttunni gegn Austurríki.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson