Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Það væri ekki amalegt að fá fjölmennan hóp stuðningsmanna að norðan

28. október 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar

Viltu koma með í hópferð á leik Vals og Akureyrar 4. nóv?

Nú er smáhlé á N1 deildinni vegna landsleikja en slagurinn hefst aftur þann 4. nóvember. Þá leikur Akureyri Handboltafélag gegn silfurliði Vals og fer leikurinn fram í Vodafone höllinni í Reykjavík. Mikill áhugi virðist vera á leiknum meðal stuðningsmanna Akureyrar og því er ráðgert að bjóða upp á hópferð á leikinn.

Lagt verður af stað klukkan 12:30 fimmtudaginn 4. nóvember en leikurinn hefst klukkan 18:30. Lagt verður af stað heim strax að leik loknum.

Fargjaldið með rútunni (báðar leiðir að sjálfsögðu) er kr. 5.000.- og síðan kostar væntanlega 1.000.- krónur inn á leikinn sjálfan.

Þetta tilboð er háð því að ákveðin lágmarksþátttaka fáist og því er mjög mikilvægt að áhugasamir skrái sig hér fyrir neðan. Hægt er að skrá sig til klukkan 18:00 þriðjudaginn 2. nóvember en þá verður hægt að taka endanlega ákvörðun um það hvort ferðin verður farin.




Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson