Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Það var kærkomið að fá heimaleik í bikarnum!

29. október 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar

Bikarkeppnin: Akureyri fékk heimaleik gegn Aftureldingu

Nú í hádeginu var dregið í 16 liða úrslitum Eimskipsbikarsins og dróst lið Akureyrar Handboltafélags á móti Aftureldingu og verður leikið á Akureyri. Eins og kunnugt er sigraði Akureyri HK í 32-liða úrslitunum og líkt og í þeirri umferð er þetta eina viðureign úrvalsdeildarliða og þar með stórleikur umferðarinnar.

Liðin sem drógust saman eru eftirfarandi (heimaliðið á undan):
Haukar 2 - Víkingur
Hamrarnir - Selfoss
Grótta - FH
ÍBV 2 - Haukar
ÍR 2 - Fram
ÍR - Stjarnan
Akureyri - Afturelding
Valur 2 - Valur

Það verða því tveir bikarleikir á Akureyri á næstunni því Hamrarnir eru einmitt utandeildarlið frá Akureyri.

Leikdagar hafa ekki verið ákveðnir en ætlast er til að þeir fari fram 14. eða 15. nóvember næstkomandi. Allavega verður bikarstemming á Akureyri á næstunni!
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson