Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Margir leikmenn hafa farið á kostum í upphafi leiktíðar

28. október 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar

Nýtt á heimasíðunni: Kjóstu leikmann mánaðarins

Við bjóðum upp á þá nýbreytni í vetur að lesendur heimasíðunnar geta valið leikmann hvers mánaðar. Nú er fyrsti leikjamánuður tímabilsins liðinn og því hrindum við kosningunni af stað. Þetta er ákaflega einfalt, þú smellir í doppuna framan við nafn þess leikmanns sem þú vilt kjósa, hakar síðan í kassann neðst og smellir á hnappinn Senda svör.

Allir leikmenn liðsins eru í boði en athugið að sami leikmaður getur ekki sigrað tvo mánuði í röð, þannig að þegar valinn verður leikmaður nóvember mánaðar verður sá sem hlýtur titilinn í október ekki í boði.





Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson