Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Smáruglingur leiðréttur

1. nóvember 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar

Hópferð á leik Vals og Akureyrar – enn er hægt að skrá sig

Sú meinlega villa slæddist inn í frétt okkar um mögulega hópferð á leik Vals og Akureyrar að sagt var að síðasta tækifæri til að skrá sig væri til klukkan 18:00 mánudaginn 2. nóvember. Að sjálfsögðu er 2. nóvember á þriðjudag og biðjumst við velvirðingar á þessum ruglingi en sama villa var líka í sendingu á póstlistanum okkar.

Það rétta í málinu er hægt er að skrá sig í ferðina til klukkan 18:00 þriðjudaginn 2. nóvember og endanleg ákvörðun um ferðina verður síðan tekin á þriðjudagskvöldið.

Það er sem sé ennþá tækifæri til að skrá sig í ferðina!



Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson