Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Eina viðureign úrvalsdeildarliða í 16 liða umferðinni

2. nóvember 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar

Eimskipsbikarinn: Akureyri og Afturelding mætast 15. nóv

Akureyri og Afturelding úr Mosfellsbæ mætast í 16 liða úrslitum Eimskipsbikarsins og nú hefur verið áveðið að leikurinn fari fram mánudaginn 15. nóvember. Leikurinn hefst klukkan 19:00 og verður hér í Íþróttahöllinni.

Þetta er ekki okkar hefðbundni leikdagur en fyrir vikið enn meiri ástæða til að hvetja stuðningsmenn til að taka daginn frá því að hér er mikið undir. Við vitum reyndar um ýmsa sem eru bundnir í margs konar verkefnum á fimmtudögum og þeir munu áreiðanlega fagna því að fá nú tækifæri til að sjá liðið spila á heimavelli á óhefðbundnum leikdegi.

En fram að þessum leik eru tveir deildarleikir, núna á fimmtudaginn fer liðið suður og leikur við Val og fimmtudaginn 11. nóvember koma Selfyssingar í heimsókn og leika hér í Höllinni.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson