Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

RÚV ætlar að sýna útileikinn gegn FH beint

3. nóvember 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar

Ekki verður af hópferðinni á leik Vals og Akureyrar

Því miður verðum við að fella niður fyrirhugaða hópferð á leikinn gegn Val á morgun (fimmtudag) þar sem ekki náðist nægileg þátttaka að þessu sinni. Við þökkum þeim sem skráðu sig fyrir sýndan áhuga og aldrei að vita hvenær verður blásið til slíkrar ferðar á ný.

Leikurinn á morgun verður í beinni textalýsingu hér á síðunni og hvetjum við alla sem ekki komast á leikinn til að fylgjast með henni. Svo virðist sem SportTV.is hafi lagt upp laupana en þeir höfðu ætlað sér að sýna leikinn beint.

Þá höfum við fengið þær fréttir að næsti útileikur Akureyrar sem er gegn FH hafi verið færður um tvo daga, af fimmtudegi yfir á laugardaginn 20. nóvember og verði sýndur beint á RÚV.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson