 Það er betra að hafa hemil á sér
| | 21. desember 2010 - Akureyri handboltafélag skrifarTveir leikmenn verða í banni þegar N1 deildin hefst á nýLeikur Vals og Fram í síðustu viku hefur heldur betur dregið dilk á eftir sér. Upp úr sauð á lokamínútum leiksins og fékk Valdimar Fannar Þórsson beint rautt spjald fyrir brot en Reynir Þór Reynisson, þjálfari Fram lét óánægju sína með dómgæsluna í ljós eftir leikinn með þeim hætti að hann fékk sömuleiðis rautt spjald.
Mál þeirra voru tekin fyrir á fundi aganefndar HSÍ í dag og hlutu eftirfarandi afgreiðslu:
Fundur Aganefndar HSÍ, 21. des. 2010 Mættir voru Gunnar K. Gunnarsson, Rögnvald Erlingsson og Vala Valtýsdóttir. Eftirtalin mál lágu fyrir fundinum og voru afgreidd:
- Valdimar Fannar Þórsson leikmaður Vals hlaut útilokun með skýrslu vegna grófs brots á síðustu mínútu í leik Vals og Fram í M.fl.ka. 16.12.2010. Niðurstaða aganefndar er að leikmaðurinn er úrskurðaður í eins leiks bann.
- Reynir Þór Reynisson starfsmaður Fram hlaut útilokun með skýrslu vegna grófrar óíþróttamannslegrar framkomu eftir leik Vals og Fram í M.fl.ka. 16.12.2010. Niðurstaða aganefndar er að starfsmaðurinn er úrskurðaður í eins leiks bann.
Önnnur mál lágu ekki fyrir Gunnar K. Gunnarsson formaður.
 Þetta þýðir að þeir verða í leikbanni þegar N1 deildin hefst aftur þann 3. febrúar, Valdimar Fannar verður í banni þegar Valur sækir Akureyri heim og Reynir Þór mun ekki stýra sínum mönnum þegar FH mætir Fram í Safamýrinni. |