 Annað árið í röð keppir Akureyri Handboltafélag í deildarbikarnum
| | 24. desember 2010 - Akureyri handboltafélag skrifarFlugfélags Íslands Deildarbikarinn 2010Milli jóla og nýárs fer fram keppni um Deildarbikar HSÍ en sú keppni hefur verið haldin á þessum tíma undanfarin þrjú ár. Í ár líkt og í fyrra ber keppnin heitið Flugfélags Íslands Deildarbikarinn.
Fjögur efstu lið í N1 deildum karla og kvenna taka þátt í keppninni og er miðað við stöðu liðanna eftir seinustu umferð fyrir jól þar sem allir hafa leikið jafn marga í leiki. Í karlaflokki eru það Akureyri, Fram, FH og Haukar og í kvennaflokki er það Fram, Stjarnan, Valur og Fylkir. Leikið verður í Íþróttahúsinu Strandgötu í Hafnarfirði. Miðaverð er 1.000 kr fyrir hvorn dag, fyrir 16 ára eldri, en frítt inn fyrir 15 ára og yngri. Aðgöngukort HSÍ, A og B, gilda á leikina en ekki C kortin.
Allir leikir mótsins verða sýndir beint á SportTV.is.
Leikjaplanið er eftirfarandi:
Mánudagur 27.desember 2010 FÍ Deildarbikar kvenna kl. 16:00 Stjarnan - Valur FÍ Deildarbikar kvenna kl. 17:15 Fram - Fylkir FÍ Deildarbikar karla kl. 19:30 Fram - FH FÍ Deildarbikar karla kl. 21:15 Akureyri – Haukar
Þriðjudagur 28.desember 2010 FÍ Deildarbikar karla kl. 18:15 Úrslit FÍ Deildarbikar kvenna kl. 20:00 Úrslit |