Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Akureyri lék til úrslita gegn Haukum í fyrra

27. desember 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar

Leikur dagsins: Haukar – Akureyri sýndur á SportTV.is

Í dag hefst deildarbikarkeppni HSÍ sem er kennd við Flugfélag Íslands þetta árið líkt og í fyrra. Leikið er í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði og eigast þar við fjögur efstu lið N1 deildar karla og kvenna.

Konurnar hefja leikinn klukkan 16:00 með leik Stjörnunnar og Vals og strax þar á eftir mætast Fram og Fylkir.
Karlarnir hefja leik klukkan 19:30 þegar Fram og FH mætast en klukkan 21:15 keppa Akureyri og Haukar.

Allir leikirnir verða sýndir beint á SportTV.is en sigurvegararnir mætast í úrslitaleikjum á morgun, þriðjudag.

Fylgjast með útsendingunni.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson