Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Ómetanlegt framlag Samherja

6. janúar 2011 - Akureyri handboltafélag skrifar

Rausnarlegur stuðningur Samherja

Um áramótin afhenti Samherji höfðinglega styrki til nokkurra íþrótta- og æskulýðsfélaga á Eyjafjarðarsvæðinu, alls að upphæð 75 milljónum. Þetta er í þriðja sinn á jafnmörgum árum sem Samherji veitir slíka styrki.

Að þessu sinni fékk Akureyri Handboltafélag rausnarlegan styrk frá Samherja sem er starfsemi félagsins ómetanlegur. Fyrir það viljum við þakka og færum stjórn og aðaleigendum Samherja Þorsteini Má Baldvinssyni, Kristjáni Vilhelmssyni, Kolbrúnu Ingólfsdóttur og Helgu Steinunni Guðmundsdóttur, svo og öllu starfsfólki félagsins, innilegar þakkir fyrir okkur.


Helga Steinunn afhendir Hannesi Karlssyni styrkinn til Akureyrar Handboltafélags


Fulltrúar Samherja og styrkþega við afhendinguna. Myndir: Þórir Tryggvason

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson