Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Mikilvæg helgi hjá strákunum



7. janúar 2011 - Akureyri handboltafélag skrifar

Oddur og Sveinbjörn með landsliðinu um helgina

Íslenska A-landsliðið leikur tvo vináttuleiki við Þýskaland um helgina og eru þeir hluti af lokaundirbúningi liðanna fyrir Heimsmeistaramótið. Fyrri leikurinn er í dag, föstudag og hefst klukkan 18:45 en liðin mætast síðan aftur á morgun, laugardag klukkan 17:00. Báðir leikirnir verða sýndir beint á RÚV.

Það verður forvitnilegt að sjá hvort Oddur Gretarsson og Sveinbjörn Pétursson fá tækifæri í leikjunum en frammistaðan í þeim mun áreiðanlega segja til um hvort þeir verða valdir í 16 manna hópinn sem fer til Svíþjóðar. Við óskum strákunum velgengni í leikjunum.

Henry Birgir Gunnarsson hjá Fréttablaðinu ræddi við Odd Gretarsson um möguleika hans á að komast í liðið og almennt um framtíðina og er hægt að horfa á viðtalið hér.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson