Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Guðmundur Hólmar kom ekki við sögu í dag

7. janúar 2011 - Akureyri handboltafélag skrifar

U-21: Ísland vann Makedóníu stórt í dag

Íslenska U-21 árs landsliðið hóf leik í undankeppni heimsmeistaramótsins í dag með því að vinna stórsigur á Makedóníu. Strákarnir höfðu tíu marka forystu í hálfleik 21-11 og endaði leikurinn með þrettán marka sigri 37-24.
Markahæstur Íslendinga var Guðmundur Árni Ólafsson með 6 mörk en Vignir Stefánsson kom næstur með 5 mörk.
Ísland mætir Eistlandi á morgun og Serbíu á sunnudaginn. Liðið sem vinnur riðilinn tryggir sér sæti á Heimsmeistaramótinu sem fram fer í Grikklandi byrjun júlí í sumar.

Alls er leikið í átta riðlum en íslenska liðið er í 1. riðli.
Hægt er að fylgjast með stöðu mála með því að smella hér.

Tölfræði leiksins má sjá hér og sömuleiðis er hægt að skoða leikskýrsluna.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson