Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Allir lesendur heimasíðunnar geta tekið þátt

11. janúar 2011 - Akureyri handboltafélag skrifar

Kosning á leikmanni desember mánaðar

Það er allt í rólegheitum hjá stuðningsmönnum Akureyrar Handboltafélags í janúar, deildarkeppnin og bikarkeppnin í hléi og því ekkert að vanbúnaði að opna fyrir kosningu á leikmanni desembermánaðar. Þetta er ákaflega einfalt, þú smellir í doppuna framan við nafn þess leikmanns sem þú vilt kjósa, hakar síðan í kassann neðst og smellir á hnappinn Senda svör.

Eins og áður þá er eina reglan í vali leikmanns mánaðarins er að enginn getur sigrað tvo mánuði í röð og þess vegna er fyrirliðinn, Heimir Örn Árnason ekki í boði að þessu sinni en Sveinbjörn Pétursson kemur aftur til greina sem leikmaður desember. Að öðru leiti eru allir leikmenn sem tóku þátt í desemberleikjunum í boði. Hægt verður að kjósa fram til kl. 18:30 þann 3. febrúar, eða fram að næsta alvöruleik sem er gegn Val hér í Íþróttahöllinni.





Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson