 Oddur þarf að bíða eftir blómum þar til hann kemur heim frá Svíþjóð

| | 12. janúar 2011 - Akureyri handboltafélag skrifarOddur Gretarsson Handknattleiksmaður Akureyrar 2010Nú á dögunum var Oddur Gretarsson valinn handknattleiksmaður Akureyrar Handboltafélags árið 2010. Oddur er því fulltrúi félagsins þegar kemur að tilnefningu Íþróttamanns Akureyrar fyrir síðastliðið ár.
Það þarf varla að kynna Odd fyrir áhugamönnum um íslenskan handbolta en síðasta ár var einstaklega viðburðaríkt hjá Oddi. Þessi tvítugi garpur er lykilmaður í liði Akureyrar sem er efst í N1 deildinni nú í árslok. Oddur var valinn í A landslið Íslands í sumar og kórónaði frábæran árangur nú í árslok þegar hann vann sér sæti í landsliðshópnum sem er að halda á HM í Svíþjóð þessa dagana.
Oddur var kjörinn efnilegasti handknattleiksmaður Íslands í lokahófi HSÍ árið 2010 og segir það töluvert um hæfileika piltsins. Þá var Oddur ásamt nokkrum félögum sínum úr Akureyri handboltafélagi í úrvalsliði umferða 1-7 í N1 deildinni í handbolta í vetur. Oddur er ekki óvanur viðurkenningum, einu sinni sem oftar besti leikmaður Akureyrarliðsins Oddur er jafnframt í U-21 árs landsliði Íslands og hefur reyndar verið lykilmaður í yngri landsliðum Íslands undanfarin ár, var meðal annars í 19 ára landsliðinu sem vann til silfurverðlauna á heimsmeistaramótinu í Túnis árið 2009.
Þá skal það rifjað upp að Oddur var valinn besti leikmaður Akureyrar Handboltafélags og einnig besti sóknarmaður liðsins fyrir síðustu leiktíð.
Við óskum Oddi til hamingju með útnefninguna og óskum honum góðrar ferðar til Svíþjóðar, við munum að sjálfsögðu fylgjast grannt með honum og hinum strákunum okkar á HM. |