 Atla er greinilega ýmislegt til lista lagt
| | 31. mars 2011 - Akureyri handboltafélag skrifarAtli Hilmarsson tekur lagiðÞað er mikill spenningur hjá leikmönnum Akureyrar fyrir kvöld enda af nógu að taka. Hörkuleikur í vændum gegn Aftureldingu og því næst taka leikmenn á móti bikarnum fyrir deildarmeistaratitilinn. En það er þó ekki allt heldur ætla leikmenn að herma loforð upp á þjálfarann, Atla Hilmarsson en hann hafði lofað að syngja fyrir leikmenn þegar titill væri í höfn.
Nú er fyrsti titillinn kominn í hús og ekkert að vanbúnaði fyrir Atla að grípa míkrófóninn. Væntanlega tekur Atli sitt þekktasta lag, Fiskinn hennar Stínu en það söng hann oft hér á árum áður er hann gerði KA að Íslandsmeisturum.
Á 80 ára afmælishátíð KA í janúar 2008 var Atli kallaður óundirbúinn upp á svið og tók Fiskinn með hljómsveit hússins og fórst það snilldarlega úr hendi eins og hans var von og vísa. Svo skemmtilega vill til að í hljómsveitinni eru tveir stjórnarmenn Akureyrar Handboltafélags, Stefán Jóhannsson gítarleikari og Hannes formaður Karlsson trommuleikari. Aðrir í hljómsveitinni eru bræður Stefáns, þeir Árni og Eiríkur Jóhannssynir sem leika á bassa og hljómborð.
 Atli fór hreinlega á kostum  Hljómsveitin með Atla Hilmarsson í fararbroddi |