Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Hvernig sem fer þá mun Heimir lyfta bikarnum í kvöld

31. mars 2011 - Akureyri handboltafélag skrifar

Leikur dagsins: Akureyri - Afturelding og bikarafhending

Það er enginn venjulegur leikur sem verður í Höllinni í kvöld þegar Akureyri og Afturelding mætast. Afturelding berst fyrir lífi sínu í deildinni en Akureyri getur þannig séð komið afslappað til leiks, deildarmeistaratitillinn i höfn og liðið fær bikarinn afhentan í leikslok. Það verður þó ekkert gefið eftir af hálfu Akureyrar eins og kemur fram hjá fyrirliðanum:

„Við ætlum okkur að taka við bikarnum eftir sigurleik og það verður ekki leiðinlegt að gera það fyrir framan fulla höll af okkar áhorfendum sem hafa stutt vel við bakið á okkur í vetur. Okkar stuðningsmenn eiga þetta jafn mikið eða ekki meira skilið en við,” segir Heimir Örn Árnason fyrirliði Akureyrar í viðtali við Vikudag.

Við munum að sjálfsögðu verða með beina textalýsingu frá leiknum fyrir þá sem ekki komast á leikinn. Leikurinn hefst klukkan 19:30 og lýsingin rétt áður.

Smelltu hér til að fylgjast með lýsingunni.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson