 Halldór Logi Árnason var valinn besti leikmađur liđsins ađ ţessu sinni
| | 31. mars 2011 - Akureyri handboltafélag skrifarAkureyri tók viđ bikarnum eftir tap á heimavelli Akureyringar tóku viđ deildarbikarnum í kvöld eftir tap gegn Aftureldingu, 21:24, í Höllinni á Akureyri í nćstsíđustu umferđ N1-deildar karla í handbolta. Hafţór Einarsson átti stjörnuleik í marki Aftureldingar og varđi 26 skot. Gestirnir virtust mun hungrađari í sigur á međan Akureyraringar virtustu vera komnir međ hugann viđ verđlaunaafhendinguna fyrir leik. Leikurinn var ekki vel spilađur en Afturelding innbyrti tvö mikilvćg stig í botnbaráttunni. Hér á eftir er byggt á umfjöllun Ţrastar Ernis Viđarssonar blađamanns Vikudags.
Akureyringar gerđu tvćr breytingar í liđi sínu í kvöld en ţeir Bergvin Gíslason og Halldór Logi Árnason komu inn í byrjunarliđiđ fyrir ţá Hörđ Fannar Sigţórsson og Guđlaug Arnarsson sem báđir glíma viđ lítilsháttar meiđsli.
Vörn Akureyrar bar ţess merki í leiknum enda hafa ţeir Guđlaugur og Hörđur spilađ ţar stóru rullu í vetur. Hvorugt liđiđ bauđ upp á merkilegan fyrri hálfleik sem var slakur og hreinlega leiđinlegur. Bćđi liđ skutu illa markiđ og vörnin var ekki í hávegum höfđ hjá hvorugu liđinu. Hafţór Einarsson átti ţó fínan hálfleik í marki Aftureldingar en hann varđi 9 skot gegn sínum gömlu félögum.
Akureyri komst í 3:1 og tveggja til fjögurra marka forystu fram ađ stöđunni 8:4 en Afturelding komst yfir 9:8 ţegar sautján mínútur voru liđnar af leiknum. Sú stađa entist í heilar átta mínútur en ţá komst Afturelding í 8-10 og segir ţađ sitt um sóknarleik beggja liđ í fyrri hálfleik. Gestirnir komust tveimur mörkum yfir ţegar skammt var til hálfleiks og héldu ţeim mun út hálfleikinn.
Stađan í leikhléi, 13:11, Aftureldingu í vil.
Afturelding byrjađi fyrri hálfleikinn af krafti. Hafţór hélt áfram ađ verja eins og bersekur og Mosfellingar komust fjórum mörkum yfir, 16:12. Akureyringar tóku ţá viđ sér og jöfnuđu í 16:16 um miđjan hálfleikinn. Leikurinn var í járnum nćstu mínútur ţar sem eitt til tvö mörk skildu liđin ađ en Bjarni Fritzson virtist einna helst finna leiđ framhjá Hafţóri í marki gestanna af sóknarmönnum Akureyrar.
Leikmenn Aftureldingar voru hins vegar sterkari á lokasprettinum og komust ţremur mörkum yfir, 23:20, ţegar hálf mínúta var eftir og úrslitin ráđin.
Lokatölur, 24:21 fyrir gestina. Međ sigrinum komst Afturelding í umspil um áframhaldandi sćti í deildinni, ţar sem Selfoss tapađi sínum leik gegn Val.
Mörk Akureyrar: Bjarni Fritzson 8 (4 víti), Oddur Gretarsson 3 (2 víti), Guđmundur Hólmar Helgason 3, Halldór Logi Árnason 2, Daníel Einarsson 2, Heimir Örn Árnason 2, Bergvin Gíslason 1. Varin skot: Sveinbjörn Pétursson 13.
Mörk Aftureldingar: Ţrándur Gíslason 7, Sverrir Hermannsson 6, Reynir Ingi Árnason 3, Bjarni Aron Ţórđarsson 3 (2), Jóhann Jóhannsson 2, Arnar Freyr Theódórsson 2, Ásgeir Jónsson 1.
Varin skot: Hafţór Einarsson 26.
Ţrátt fyrir tapiđ í kvöld tók Akureyri á móti deildarmeistaratitlinum 2011 úr hendi Einars Ţorvarđarsonaf framkvćmdastjóra HSÍ. Meistararnir kátir međ bikarinn sín á milli
|