Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Það væri glæsilegt að sjá alla stúkuna í svarta bolnum

23. apríl 2011 - Akureyri handboltafélag skrifar

Stuðningsmannabolur Akureyrar fáanlegur á ný

Við vorum að fá nýja sendingu af stuðningsmannabolum Akureyrar Handboltafélags og ættu allar stærðir að vera fáanlegar. Hér er um að ræða svartan Hummel bol með hvítu ívafi auk þess sem merki Akureyrar Handboltafélags er framan á bolnum.

Þeir sem ekki hafa orðið sér úti um slíkan bol ættu að mæta tímanlega í Íþróttahöllina fyrir leikinn á þriðjudaginn en bolirnir eru seldir í Íþróttahöllinni í tengslum við heimaleiki Akureyrar. Jafnframt hvetjum við alla stuðningsmenn til að klæðast svörtu bolunum sínum á leiknum og setja þannig afgerandi svip á stúkuna. Bolurinn kostar aðeins 4.000.- krónur.


Flottir strákar í stuðningsmannabolunum

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson