Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Það er komið að úrslitastundu hjá
2. flokki

25. apríl 2011 - Akureyri handboltafélag skrifar

2. flokkur: Akureyri og FH leika í Síðuskóla á miðvikudag

Akureyri og FH standa í stórræðum á ýmsum sviðum þessa dagana. Ekki nóg með að meistaraflokkar félaganna berjist um Íslandsmeistaratitilinn heldur eigast liðin sömuleiðis við í 2. flokki í fjögurra liða úrslitunum.

Leikur liðanna er settur á klukkan 16:15 á miðvikudaginn og er leikið í Íþróttahúsi Síðuskóla. Akureyri endaði í 2. sæti deildarinnar og sigraði lið Gróttu í átta liða úrslitunum.
FH endaði í 6. sæti deildarinnar og sigraði Stjörnuna í átta liða úrslitunum.

Sigurvegarinn úr leiknum mætir síðan annaðhvort Haukum eða Selfossi í úrslitaleik. Tímasetning á sjálfum úrslitaleiknum er eitthvað á reiki, en samkvæmt nýjustu upplýsingum verður hann laugardaginn 7. maí þrátt fyrir að á heimasíðu HSÍ sé hann settur á laugardaginn 30. apríl klukkan 20:00 í Vodafonehöllinni.

Það er allavega full ástæða til að mæta í Síðuskóla á miðvikudaginn og standa með strákunum í baráttunni.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson