Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Oddur og félagar eiga ennþá möguleika á að verða Íslandsmeistarar

6. maí 2011 - Akureyri handboltafélag skrifar

2. flokkur leikur til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn á morgun

Akureyri Handboltafélag á ennþá möguleika á því að verða Íslandsmeistari í ár þar sem 2. flokkur félagsins mun á morgun leika hreinan úrslitaleik við Hauka um Íslandsmeistaratitilinn í þeim flokki. Á síðustu árum hefur Akureyri verið hársbreidd frá því að landa þessum stóra titli og nú hlýtur að vera komið að því að strákarnir tryggi sér titilinn!

Þeir sem hafa áhuga á að styðja strákana til sigurs er bent á að mæta í Víkina (heimavöll Víkinga) en leikurinn hefst klukkan 12:30 á morgun (laugardag). Fyrir ykkur sem komist ekki á leikinn þá ætlar SportTV að sýna leikinn beint á heimasíðu sinni www.sporttv.is.

Áfram Akureyri!
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson