 Halldór skoraði 5 mörk í dag en það dugði skammt
| | 7. maí 2011 - Akureyri handboltafélag skrifar2. flokkur tapaði úrslitaleiknum gegn HaukumNú rétt í þessu var að ljúka úrslitaleik Akureyrar og Hauka um Íslandsmeistaratitilinn í 2. flokki. Það má með sanni segja að Akureyringar hafi mætt seint til leiks og Haukar hafi allan tímann átt skilið að sigra.
Haukar náðu mest 7 marka forskoti í fyrri hálfleik, en staðan í hálfleik var 12-18. Varnarleikur Akureyrar var ekki nógu góður og markvarslan var engin, á sama tíma stóðu Haukar vörnina vel og fengu mjög góða markvörslu.
Akureyringar náðu að byrja síðari hálfleikinn af krafti og minnkuðu muninn niður í 16-19 strax eftir fjórar mínútur en þá gáfu Haukarnir bara aftur í og skoruðu þrjú mörk í röð. Munurinn hélst svo í 5-7 mörkum það sem eftir lifði leiks þangað til að um 6 mínútur voru eftir. Þá loksins kviknaði líf í okkar mönnum og þeir fóru að minnka forskot Hauka. Liðið fékk smá markvörslu og menn fengu smá trú á verkefnið. Hinsvegar kom þessi kafli bara of seint og Haukar fögnuðu sigri 31-33.
2. flokkur Akureyrar þarf því að sætta sig við silfrið fjórða árið í röð, sem er vissulega frábær árangur þó erfitt sé að sætta sig við tap í úrslitaleik.
Halldór Örn Tryggvason, Ólafur Magnússon, Guðmundur Hólmar Helgason og Bergvin Gíslason skoruðu allir 5 mörk í dag. Markmenn Akureyrar vörðu samtals 10 skot, þar af 4 á síðustu mínútum leiksins. |