 Sveinbjörn er efstur á blaði í öllum flokkum markvörslunnar

| | 16. maí 2011 - Akureyri handboltafélag skrifarUppfærð tölfræði og sögulegar staðreyndirÍ upphafi síðasta keppnistímabils var takin saman áhugaverð tölfræði og sagnfræði yfir helstu met liðsins og einstakra leikmanna. Nú liggja fyrir niðurstöður tímabilsins 2010-2011 og búið að uppfæra síðuna í samræmi við nýjar staðreyndir.
Þar er t.d. hægt að sjá á einum stað yfirlit yfir leikjahæstu menn í sögu félagsins, hver er yngsti leikmaðurinn sem hefur klæðst búningi meistaraflokks og hver er sá elsti. Hverjir hafa verið iðnastir við markaskorun og markvörslu og hverjir hafa gengið harðast fram í vörninni svo eitthvað sé nefnt.
Sömuleiðis er hægt að sjá árangur liðsins á hverju keppnistímabili, stærstu sigra í sögunni, bestu leikmenn og þá efnilegustu svo dæmi séu tekin.
Ýmiss met voru slegin, liðið í heild náði sínum besta árangri í deildinni, úrslitakeppninni og bikarnum auk þess sem liðið hefur aldrei fengið eins fá mörk á sig í einstökum deildarleik. Þá voru leikmenn iðnir við að setja met. Hörður Fannar er orðinn leikjakóngur liðsins, og hefur leikið flest, raunar öll tímabil með liðinu.
Bjarni Fritzson skoraði fleiri mörk á tímabilinu en sést hefur áður, sömuleiðis varði Sveinbjörn Pétursson fleiri skot en nokkur markvörður liðsins hefur gert á einu tímabili.
Heimir Örn Árnason sló það vafasama met að láta reka sig útaf oftar en nokkur leikmaður á einu tímabili og Þorvaldur Þorvaldsson varð elsti leikmaður til að klæðast keppninsbúningnum í sögu liðsins.
Þetta og ýmislegt fleira er hægt að skoða á tölfræðistaðreyndasíðunni með því að smella á þessa mynd, sem er reyndar ávallt hér hægra megin á síðunni. |